Þessi síða er... KABÚMM...!!!! DAUÐ...!!!!!
Takk fyrir samfylgdina elskurnar! þar til næst.!
Adios.!
(p.s. aldrei að vita nema einn daginn vikri ég þetta blessaða blogg )
» 2 hafa sagt sína skoðun
Blogg..!!!!
VVááá ég sem var alveg búin að skrifa fullt hérna þegar allt þurkaðist út.. loksins þegar ég kem mér í það að blogga ohh jæja.. ég ætla samt að reyna að rumpa einhverju hérna inn fyrir fólkið mitt sem bíður og bíður eftir því að ég komi með einhverja vitleysu og ómerkilega hluti hér inná
Get ekki sagt að ég sé að skemmta mér eitthvað svaka hérna.. er alveg að deyja úr leiðindum með tómt heilabú að leita af einhverj nytsamlegu til þess að skrifa! Sandra sæta og aldís litla eru fluttar að heiman og sakna ég þeirra alveg óskaplega.. það eru 3 vikur síðan þr flutti út og ég hef ekki séð þær síðan! Það er reyndar að koma helgi og ég var búin að ákveða það ásamt svenna mínum að við kíktum í sveitina til hennar söndru og eyddum þar laugardagskveldinu á sveitaballi í góðum félagsskap! ég get ekki beðið..!!! það verður vonandi gaman...
Sætustu mæðgur í heiminum.. ;* love you
Allavega voru mútta og guðmundur að koma frá usa.. voru þar með skólanum hennar mömmu í einhverri ferð að skoða einhverja stefnu sem er verið að kynna þar úti og á víst að taka hingað heim.. Skil ekki allaveg en það skiptir ekki öllu Þar var víst staujað kortinu í mall of america og ófáar töksuranr fullar af einverjum ósköpum sem keypt var það úti mamma kláraði að versla allar jólagjafirnar plús einhverja pakka sem maður fékk þegar hún kom heim
Annars er ég búin að vera ansi dugeg að versla mér eitthvað fallegt uppá síðkastið hehe... got serious shopping problem.! Finnst ógurlega gaman að versla mér föt.. hvað þá þegar ég er erlendis eins og þegar ég var í ny hjá lilju minni fyrir tveimur mánuðum síðan.. Það var mjög skemmtileg ferð þó ég sé ennþá í dag að fatta uppá einhverju sem ég gleymdi að skoða þar.. (eins og chinatown og skautasvellið sem er alltaf í myndum.. langar ssvvoo að sjá það og prufa að renna mér á því hehe.. weird í know! ) Þá hef ég bara gilda og góða afsökun til þess að fara þangað aftur ig þá mun ég líka gefa mér betri tíma til þess að skoða mig um.. 5 daga er lítill tími til að skoða stóre borg sem þessa.. Enda aðal tilgangur ferðarinnar að hitta hana lilju mína..! By the way þá er von á kjellunni a klakann eftir ca. mánuð óg get eg ekki beðið eftir að sjá gelluna
Einn tveir og gúbbí..! ;* sætastar...(tekið í ny.)
Eftir áramót hef ég svo ákveðið að fara í fjarnám og bara að vinna.. er ekki að meika þetta sitja á skólabekk dæmi..! svo er maður algjörlega á kúpunni sem er bara leiðinlegt.. Smá monní er alveg nauðsynlegt í minn vasa þessa daganna takk fyrir
Allavega þá vil ég bara enda þetta á að að er orðið ansi stutt í jólinn og er meirað segja farið að skreyta götur borgarinnar og búðaglugga svo það er ekki laust fyrir að Telma litla sé að komast í smá jólaskap Sérstaklega þar sem Sandra og Sigmar ásamt Aldísi snúllu ákváðu að vera heima hjá okkur um jólin!! jibbí...
Ég nenni ekki meira bloggi núna.. ættuð að vera sátt í bili en þa vil ég líka fá comment hehe...
Telma jólastelpa kveður..
» 7 hafa sagt sína skoðun
jæja... Þessi blessaði bloggheimur hefur nú gjörsamlega rykfallið hjá mér seinustu mánuði að sökum útlanda,sumars,sólar,vinnu,leti og margs fleira Ég ákvað nú bara fyrir hana Lilju mína að þurka aðeins rykið af henni og koma með einhverja punkta af þessu góða sumri sem ég átti
Eins og kannski flest ykkasr vita þá fór ég til frakklands í júli og var það í um mánuð með familien að skemmta okkur þar var mikið verslað,djammað,skoðað,borðað,safnað brunku,legið á ströndinni og hreinlega allt sem einkennir skemmtilegar ferðir í sólina Yndisleg ferð í alla staði sem verður endurtekin næsta sumar en þá erum við fjölskyldan að spá í að fara aftur á sama stað og vera enn lengur En þó án söndru þar sem hún vill bara vera að bóndast með sigmari síonum en þau verða farin að búa þá Jii... ég á eftir að sakna hennar svo!! 20 ár með hana til þess að gera allt með mér! Ansi margir góðir tímar sem við höfum nú átt saman sem og auðvitað slæmir sem kannski fylgir því að vera tvíburi hehe ég tel þó kostina við hana vera fleiri!! öss ég á eftir að sakna þín sandra! fæ sting í hjartað við tilhugsunina rúsínurasgatið mitt að þú sért að fara að yfirgefa hreiðrið! og tala nú ekki um að þú takir hana aldísi með þér! hvað á ég þá að gera af mér hehe
Allavega þá er sólin farin og veturinn komin.. Eða á maður að segja komin!? lítil sól og mikill vindur og rigning var víst það sem einkenndi þetta blessaða sumar! Og þeir sólardagar sem komu var ég erlendis að steikja mig í hitabylgju! Sólardagarnir hefðu nú mátt koma þegar ég var heima hef undan engu að kvarta svosem Skólinn er byrjaður aftur.. byrjaði í seinustu viku og síþreytan sko farin að láta sjá sig!!! er búin að geyspa síðan ég náði í stundartöfluna.. Æjj það er svosem ágætt að vera laus undan lóninu í bili þar sem maður getur verið ansi þreyttur á þessari vaktarvinnu!! Verð samt að vinna þar aðra hverja helgi með skólanum
Hef nú ekki mikið meira að segja ykkur eins og er! Nú er það bara skólinn alveg á fullu og svo er stefnan sett á hana lilju mína í New York bráðlega og verður það sko án efa svaðalegt!! úss... hlakka til að sjá þig skvísa!! við eigum svo eftir að hafa það klikkað gaman! og ætla ég sko að vera eins og hinn versti túristi með myndarvelina á lofti og fá mer I love NY bol hehe... Er það ekki annars skylda þegar maður fer þangað? Lilja ætla svo að sýna mér hvernig maður á að sletta úr klaufunum eins og sannur amríkani og kenna mér að borða subbuhamborga á einum af þessum sóðarstöðum sem allt feita fólkið nærir sig á hehh
Allavega þá læt ég þetta nægja í bili þið þarna einmanna sem ennþá kíkið á síðuna mína eruð skyldug til að kvitta
Kveð að sinni!!
» 10 hafa sagt sína skoðun
Já ég veit... skelfilegur bloggari hehe Bara búin að vera að vinna,vinna og vinna... ekkert annað sem kemst að þessa daganna þar sem skólinn er búinn og þess háttar Seinasta helgi var alveg hreint stórkostleg og á ég henni lilju minni það að þakka thanks hon Fór í bæinn gisti hjá henni skrölluðum fram undir morgni á stöðum bæjarins,rúntur á hummer limmó, partý eins og þau gerast best: matur bjór og helíum blöðrur sem virkilega setti partýið úr jafnvægi... Allir að sjúga að sér helíum vel ölvaðir og tala eins og strumpar HAHA ógisslega fyndið.. Jii.. var búin að gleyma hvað það er gaman að vera bara eitthvað að stelpast með liljunni Allavega nóg um það...
Miðvikudagurinn var eitthvert ansk. sundpróf í vinnunni minni sem er víst möst þar sem maður vinnur víst á baðsvæði og ég nottla ekki alveg í formi fyrir 500 metra á innan við 20 mín Alveg solis hrædd um að skítfalla og missa sumarvinnuna hehe en svo kom fyrir ekki... Náði að synda einhvern vegin í gegnum þetta með afleiðandi harðsperrum og þreytu Eftir það var grillað með hópnum og síðan heim haldið að horfa á Ungfrú Ísland... Ætlaði að fara en ekki alveg upplögð í það svo plantaði mér fyrir framan kassann í góðu yfirlæti Vil ég óska henni Sif gellu innilega til hamingju með titilinn.. átti hann svo sannarlega skilið stelpan enda stórglæsileg Einnig vil ég óska Bergþóru og Grétu til hamingju með sinn árangur en báðar voru þær glæsilegar líka
Vinna um helgina, ohh... mér sem langaði ssvvoo að fara á í svörtum fötum í kveld í kef. víst það er á annað borð frítt þarna inn.. Kallinn minn að fara svo ég þarf víst að kúra alein í myrkrinu Ekki alveg það besta fyrir manneskju sem er ennþá hrædd við skápadrauginn og skrímslin undir rúminu hehe... Svo er líka frænkuhittingur á sunnudaginn í reykjavík og ég nottla að vinna..! Æjj það verður þá bara meira um svefn og slökun þegar til frakklands er farið en það er farið að styttast skuggalega í þá ferð mmm....
Jæja ég nenni nú ekki að hafa þetta lengra í bili... vona að þið séuð stolt að mér hehe Nú er það bara að kvitta.... Hverjir sem þið eruð og þó ég þekki ykkur ekki neitt Þið sem eruð á leið á tjúttið góða skemmtun.. Ég ætla að fara að kúra uppí sófa...
Telma kveður..!
» 3 hafa sagt sína skoðun
Ef þetta er ekki snilld þá veit ég ekki hvað hehe...
Allavega þá er ég komin í sumarfrí frá skólanum.. Fór í seinasta prófið mitt í morgun og er ég alveg guðslifandi vegin að vera búin með þetta batterí Ég segi bless við allt stress Nú er sko komið að því að njóta sumarsins til fulls og vona ég að þið hin gerið það líka Ég er sko komin í sumargallan
Ætla ekki að hafa þetta lengra...
Telma sumarstelpa kveður og tekur brosandi við sumrinu!
vitiði hvað mig langar ógeðslega mikið að gera. Mér langar að fara í Dótabúðina og kaupa mér milljón vatnsblöðrur og fylla þær allar af vatni og fara í brjálaðan vatnsslag. Ég man hvað það var brjálað gaman þegar maður var yngri að fara út í hitann og fara með fullt af krökkum í vatnsslag. Hver er til??
Talandi um hita og brjálað gott verður í dag... Ohh væri maður sko til í að leggjast flatmaga út á pall í leit að smá lit en neii... þá þarf maður að hanga inni og læra undir próf.! Þetta er svo týpískt að það nú hálfa væri nóg.. svo þegar ég er búin í prófum þá er sólin farin í verkfall! ahh jæja það þýðir víst ekki að gráta það!
Get sko huggað mig við það að það eru nákvæmlega 52 dagar þar til ég fer til frakklands.. Það gerir 1 mánuð og 3 vikur ca.. jíhhaa... Get ekki beðið. Það eina sem mér kvíður er að ég þarf að skilja sykurpúðann minn hann svenna eftir! Ég veit að ég á eftir að sakna hans ógeðslega mikið! Hugga mig þó við það að það verður bara ennþá betra að koma heim Ætla sko að kaupa glás af fötum á okkur mmm og nottla liggja í sólbaði..
ohh..svona verð ég sko í sumar hehe
Jæja elskurnar ætlaði bara að hafa þetta stutt og laggott. Fariði og leikið við sólina þið sem getið Ég ætlað bara að loka mig af í skugganum og læra undir sögupróf!
Telma Kveður..
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jiii... Held það sé nú komin tími á að ég rumpi hér einhverju saman handa ykkur að lesa Vititði það að því lengra sem líður á milli þess sem ég skrifa verður ææ erfiðara að finna eitthvað til þess að segja Held það svei mér þá að ég eigi mér ekkert líf og geri alltof lítið af hlutum í þessu blessaða lífi
Alltaf sama rútínan,skóli vinna,borða sofa og svenni hehe... Allt hitt kemur þess á milli þegar ég nenni að hreyfa á mér botninn Furða mig á því daglega afhverju ég sé ekki 150 kílóa hlass hehe...
Þessa daganna standa prófin yfir og er ég að fara í 6 próf.. Svo 16. er það ekkert annað en sumarvinnan og svo france beibí ohh.. get svo innilega ekki beðið eftir því að stauja kortið mitt í búðum þar og sleikja sólina með olíuna í annari og bjórinn í hinni... Himneskt... Ætla svo að reyna að vera dugleg að draga söndruna mína memmér á tjúttið
Á morgun er það svo sveitinn hans Sigmars en hans familie var að bjóða okkur að koma til sína í kaffi á morgun og kíkja á lömbinn bera það verður eitthvað.. hehe.. ekki alveg þessi sveitastelpa en þó ágætt að kíkja stundum á sætu beljurnar og svona
Heyrðu þarf að fara og sækja svenna... Sef á því hvað ég get sagt ykkur meira frá mínu boring lífi hehehe...
Over and out..!
Telma..!
» 5 hafa sagt sína skoðun
Æjj.. afhverju er lífið svona erfitt og ósanngjarnt? Afhverju þarf ég að lenda í þessu og afhverju pabbi minn..Mikið ofboðslega er erfitt að missa einhvern ástvin. Seinustu dagar hafa verið ofboðslega erfðiðir..
Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er ég að tala um hann föður minn.. Hann Andaðist mánudaginn 17 apríl. Þó það hafi verið eitt það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum að horfa á hann tekinn svona frá mér var það viss léttir að hann þyrfti ekki að kveljast lengur úr þessum hræðilega sjúkdómi sem kallast krabbi. Þetta gekk bara svo hratt yfir að maður er ennþá að átta sig á þessu. 26 sept. í fyrra greinist hann og nú er hann farinn.. farinn frá mér að eilífu. En ég er viss um að honum líður vel þar sem hann er núna.. Núna er pabbi minn fallegur engill,sá fallegasti á himnum sem passar mig þegar mér líður illa...
Ég elska þig pabbi minn og mun alltaf gera.. Guð blessi þig og varðveiti þar sem þú ert núna og ég mun alltaf lifa með þig í minningu minni..
Þín dóttir Telma.
Netið hefur verið niðri í einhverjar tvær vikur svo ég hef ekkert getað skrifað hér inni.. Allavega þá er ég enn á lífi esskurnar svo það er ekkert að óttast
Ég er komin í páskafrí sem er alveg æðisleg tilfinning fyrir utan lærdóminn sem tekur nú við fyrir vorprófin sem skella á strax eftir páskafrí. Ég byrjaði í páskafrí seinasta föstudag en þá var starfshlaup í skólanum.. Nenni ekkert að fara neitt nánar útí það nema hvað auðvitað rústaði grindavík þessu! Af því sem ég veit best allavega..
Í gær var svo ferming allý og möggu og gekk hún hreint alveg frábærlega... Þær fengu alveg heilan hellging af fallegu dóti og peninga auðvitað svo í dag var herjað í reykjavíkina með henni múttu og stelpunum í leit af buxum sem möggu langaði að kaupa sér fyrir brot af peningnum
Úff er maður alveg komin með nett ógeð af kökum en í gær var sko étið á sig gat af gotteríi og enn nóg til Eftir veisluna var ennþá til ósnertar 11 heilar kökur og einhverjir 5 brauðréttir Svona er mamma alltaf hreint, hrædd um að baka ekki nóg svo hún bakar alltaf alltof mikið hehe Svo í dag,áður en í bæinn var haldið rann hún til tengdó með heilar 3 stykki kökur einn brauðrétt og einhverja voðalega fína laxarrúllu Um að gera að leyfa þeim aðeins að þola þá klíju sem við höfum fengið að þjást af seinustu tvo sólarhringa Er alveg farin að dreyma um eitthvað svakalega hollt í matinn, fisk eða eitthvað
Næstu helgi eru svo páskarnir en ég verð að vinna föstudag laugard. og sunnudag. Tveir dagar af því í 90% álagning svo ég held að maður ætti nú að fá einhverjar krónur útborgaðar næstu mánaðarmót Það var þá komin tími til segi ég nú, hef ekki átt bót fyrir borunni á mér seinustu daga Maður er þó loksins farin að sjá fyrir endann á því og farin að dreyma á ný um a geta keypt sér ný föt Tala nú ekki um þegar sumartískann fer að láta sjá sig í helstu búðum bæjarins.. Þá getur maður sko farið að kaupa sér einhverj gellupils og bikiní fyrir sólina
Allavega þá vildi ég nú bara aðeins láta heyra í mér fyrir ykkur örvæntingarfullu ýminduðu aðdáendur þessara síðu hehe (held að engin lesi hana nema mín áskæra tvíburasystir ) Svo ég bið ykkur alla sem eitthvað gluggið í þetta hjá mér að kvitta (Þetta er ekki beiðni heldur heimtun hehe )
Kveð að sinni... Telma..!
» 8 hafa sagt sína skoðun
Ég vil byrja á að óska henni Lilju minni fyrir hreint frábæran árangur í Ungfrú Vesturland seinustu helgi en skvísan lennti í 3.sæti Fannst hún alveg afgerandi falleg þetta kvöld og átti hún með sanni skilið að lenda í því fyrsta að mínu mati (Þó hún Aldís hafi nú verið glæsileg líka ) Mér fannst nú ekki mikil samkeppni í þessu núna og var alveg vitað mál að Lilja mundi taka eitthvað sæti og hirða einhverja kórónuna Allavega þá rúllaði ég í höfuðborgina þegar kl var um hálf 7 en fékk svo far með honum adda í gegnum kvalfjarðargöngin svo við værm nú ekki að borga tvöfalt í þetta Keppnin var mjög flott og atriðin engu síðri. Hléin á milli atriða voru samt alveg svakalega löng og ég sú allra óþolinmóðasta, orðin svakalega spennt sem einkennist af klósettferðum á 5 mín.fresti hehe Eftir keppnina ætlaði ég að fara með lilju og gumma á ballið sem var haldið á eftir þetta en lilja átti 3 boðsmiða.. Keppnin var samt ekki búin fyrr en rétt fyrir eitt og átti ég þá eftir að keyra í borgina og svo til Grindavíkur að ég fór bara heim.. Sorry Lilja Var orðin alveg rangeygð af þreytu..
Frá v.Elísa 2.sætið og Aldís vinner og lilja sæta í því 3
Vikan hefur annars bara verið ansi róleg hjá mér. Skóli og vinna til skiptis en ég er að reyna að vera ýktað dugleg og taka að mér eins miklar aukavaktir og ég get fyrir sumarið svo ég geti nún verið sæt og fín í nýjum fötum þegar sólin fer að skína
Fermingin hjá Allý og Möggu er svo ekki núna um helgina heldur næstu og verður íbúðin heima tekin í gegn um helgina en ég verð væntanlega að vinna uppí lóni alla helgina. Laugardaginn fyrir fermingu ætlum við bjútíbollurnar úr keppninni svo að hittast og kíkja í lónið en við fengum frímiða ofan í og nudd innifalið Jafnvel tékka á ruslfæði á helstu sósustöðum borgarinnar mmmm... Stelpurnar ætluðu svo að kíkja á Yello eftir það býst ég við en við eigum eitthvað áfengi þar inni frá því þegar keppnin var sem við gátum ekki nýtt okkur..! máttum ekki drekka..!! En ég held að ég verði að afþakka það þar sem ég þarf nú að vakna snemma um morgunin og hefja undirbúningin heima..
Allavega þá er ég að fara í tíma núna (Ætlaði að vera svakalega dugleg og læra víst ég var nú í eyðu hehe.. alltaf jafn samviskusöm )
Eigiði góðan dag dúllur..!
Ég ætla að byrja þessa færslu á að óska Lilju minni til hamingju með 20 ára afmælið sunnudaginn seinasta!! Ógisslega til hamingju með það esskan mín;*Skvísan sumsé orðin löglegur djammari hehe Nú er það bara að bíða eftir mér svo við getum skottast löglega á barina
afmæli sbjórinn þinn,kli kka nottla ekki á honum
En svo má ekki gleyma Ungfrú Vesturland en pæjan er að fara að taka þátt næsta laugardag í þeirri bjútí keppni.Keppninn verður haldin á Akranesi..! god.. ég get ekki beðið eftir því að fara og sjá hana hirða kórónuna en Lilja er mjög glæsileg stúlka og held ég að hún taki þetta í bakaríið Ég fer auðvitað á keppnina og mun sitja á fremsta bekk ásamt hennar stuðningshóp og verður ekkert sparað með öskrin Vara þig við esskan hehe Myndavélin verður svo auðvitað á sýnum stað og mun ég alveg taka gommuna af myndum..
ohh.. Þúrt svo mikið æði kleinan mín hlakka til að sjá þig;*
Æjj... Það er samt fínt að það er aðeins farið að róast hjá mér... Farin að geta hugað aðeins meira af mér og mínum og svo er það að fara að setja námið á fullt núna þar sem það er alls ekki langt í þessi blessuðu lokapróf..! ( sem ég reyni að hugsa sem minnst útí.. )
Ég er svo fátæk.. á einhver nokkra þúsund kalla sem hann er ekkert að nota? endilega látið mig vita og ég gef ykkur reikningsnúmerið mitt! Það er alltaf svo margt sem manni langar í og svo margt sem maður þarf að gera,kaupa,borga,skulda og svo framvegis.. Hef bara ekki efni á þessu hreinlega.. Ætla sko að vera ógisslega dugleg að vinna í sumar svo ég hafi nóg af peningum fyrir frakklandsferðinni sem ég er að fara í, í júlí get ekki beðið.. Fá smá lit og versla díí. það verður sko geggjað að sleikja sólina í faðmi fjölskyldunnar
Var að vinna um helgina í bláa lóninu.Veit ekki hvort ég hafi verið ráðin þar eða hvort þetta hafi verið einhversskonar reynsla.. Allavega þá sagði ég uppí búðinni í dag.. Get bara enganvegin hugsað mér að sitja á kassa enn eitt sumarið og raða í hillur.. Svo er ég að spá í að ef ég fæ ekki vinnu í lóninu í sumar sem kemur eflaust á hreint á morgun þá fari ég í fiskinn hehe... Ekkert jafnast á við góða kæsta fiskifýlu sem situr í öllum fötunum manns mMm.. Svenni er eflaust farin að krossleggja fingurna uppá að ég fái ekki í lóninu og hlakka til þess að fá mig heim eftir vinnudagana, skítug með fiskifýluna alveg angandi ÉG mundi allavega hlakka til þess Svenni?? HAHA...
9.Apríl eru svo litlu rjómabollu systur mínar að fara að fermast.. Jii.. Þær eru svo litlar en samt svo stórar..!! eða þið vitið.. Fermast..! Ætli ég verði ekki ennþá í fs þegar þær fara í framhaldsskóla Allavega þá er áveðið að við verðum með kökur og snittur í veislunni og ætlum við að halda hana heima.. Verður sko nóg að kökum og góðgæti og það verður sko ekkert sparað ofan í mig.. Verð með snjóskófluna að moka oní mig Alveg ELSKA kökur og junk food þessa daganna að það hálfa væri nóg
Ohh.. Ætla að láta mig dreyma um pítsur og sælgæti..
Kveð að sinni!
Einn að tilefni sælgætisþörf minni:
Hvað sagði ljóskan þegar hún sá
cheerios? nei... kleinuhringjafræ
» 9 hafa sagt sína skoðun
Þá er þetta fegurðarstúss búið.
Sif gellan fór með sigur úr bítum en annað sætið hreppti svo Gréta ástarfleys gella og í 3 sæti varð svo Bergþóra Dísa Edwards tók svo ljósmyndafyrirsætan, Margrét fékk vinsælasta stúlkan og Dior stúlkan en Sif tók einnig við titlunum blue lagoon stúlkan og k-sport stúlkan Vil ég nottla óska þeim til hamingju með það
Vinningshafar kvöldsins
Lovísa t.v.og oddný t.h. sem sáu um allan undirbúning ásamt Margrét Rósu gellu
Gæti ekki verið sáttari við kveldið sem slíkt... Þetta var alveg ótrúlega gaman en samt svo alltof fljótt að líða Stapinn pakkfullur af vitleysingum sem komu til þess að glápa á kroppasýningu svo er óhætt að segja að manni hafi liðið sem drottningu þau skipti sem maður drollaðist inn pallin á fínu háhæluðu skónum Byrjuðum daginnn kl 1 þegar ég fór í förðum uppí lyf og heilsu en þarnæst var síðan haldið í greiðslu til hennar Anítu en ég átti að mæta þar kl 3. Þetta súss var síðan allt búið um kl 5 en þá var hún Margrét elskan svo góð að veita mér félagsskaps fram að mætingu í stapanum en við áttum að vera mættar þar stundvíslega kl 7! (sem ég skil nú ekki alveg..) Hnúturinn solis farin að krækja sér í allan líkamann á okkur og tilhlökkuninn komin uppúr öllu valdi Allavega á mér... ! Ohh... ég get ekki verið sáttari með þetta kvöld... Við vorum allar svo sannarlega glæsilegar. Þetta var svo ógeð gaman.. Maður klökknar bara við tilhugsunina um að seinustu tveir mánður í undirbúning séu búnir.. Engar skemmtilega gönguæfingar um helgar framundan.! ohhh jæja við skutlur höfum nú ekki sagt slitið við hvor aðra því við ætlum að reyna að vera duglegar að hittast og skella okkur í singstar hjá henni Bergþóru aftur hehe Vill samt nota þetta tækifæri og þakka ykkur stelpur mínar æðislega vel fyrir allt saman Ég vona að þið hafið skemmt ykkur jafn vel og ég Svo mætum við allar og fjölmennum Broaway þegar Ungfrú Ísland verður en við höfum án ef þrjá glæsilega fulltrúa frá Suðurnesjum þetta árið
Núna tekur svo bara við skólinn alveg á fullt en það er lítið eftir af honum... Svo styttist líka í páskafríið en ég get ekki beðið eftir því að stúta einu páskaeggi frá Nóa og Siríusi sf stærstu gerð ohh... Ekki al slæmt það!
Sumarið er nú eitthvað farið að segja til sín og get ég ekki beðið eftir því að spranga um á stuttu pilsi og hlýrabol Er svo að fara með familien til frakklands í Júlí og verður það án efa mjög skemmtilega ferð Ohh.. ég ELSKA sumar og sól..! Þá þarf sko enga ljósabekki til þess að ylja manni og maður á ALLTAf pening. Ég hef b.t.w. ekki keypt mér neitt fallegt í heillangan tíma og er manni farið að klæja allverulega í fingurgómana með að fara að versla sér föt og þess háttar gaman
Jæja... ég ætla að fara að glápa á kassann og athuga hvort það sé eitthvað um að vera skemmtilegt þar..! Er búin að liggja í einhverri flensu síðan á sunnudaginn. Það er svo leiðinlegt að hanga ein heima.. (pottþétt veik af öllu blessaða nammiátinum sem hefur sett sitt strik í þetta allt saman eftir keppnina ) allar gulrætur og gúrkur ýtt til hliðar.. Svo ekki sé nefnt á skyrið hehe
Eigið góðan dag sykurpúðarnir mínir
Vona að þið séuð ánægð með mig núna langt og gott blogg sem ætti að veita ykkur ánægju hehe
» 11 hafa sagt sína skoðun
Jæts... Nú er ekki hægt að segja annað en að stressið sé algjörlega að taka yfirvöldin hér á bæ...!!!! Kann einhver hér voða gott ráð fyrir úber stressað fólk til þess að losna við það Allt batteríið að klárast á morgun og er generalprufan og viðtalið í dag.. hvernig svo sem það fer
WISH ME GOOD LUCK....!!!!!!
( læt vita hvernig allt saman fer eftir þetta )
» 4 hafa sagt sína skoðun
Fékk áskorun frá henni Ninju pæju um að svara þessu....! Eins og mér finnst svona með eindæmum leiðinlegt þá sit ég hér nú samt og ætla að svara þessu... Sést og sannast enn eina ferðina hversu sorgleg ég er
Fjögur störf sem ég hef unnið yfir ævina: Hverabakarí Hveragerði
American Style í kóp.
Nettó Grindavík
Hótel Örk Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur: Love & Basketball Joe Dirt
Selena
hhhmmm...? Fjórir staðir sem ég hef búið á: Reykjavík City Grindavík
Vík í Mýrdal
Spánn Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar: Nágrannar America´s Next top model Laguna Beach Simpsons Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Spánn. Portúgal. Danmörk.
Bráðum France beibí 4 bækur sem ég les oft..... í: Skólabækur... Telst það með? Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna: Sólarlöndum... Helst Benidorm að sleikja sólina og þræða helstu diskótekinn... ohhh... Einhversstaðar að botna kreditkort með endalausri upphæð á Kúra uppí rúmi með sængina mína. American Style að borða djúsí hamborgara Fjórar stelpur sem ég skora á að gera þetta eru:
Æjj engar.. Veit hvað það er dead boring að svara svona
Heil og sæl elskurnar..!